18.1.2008 | 07:08
Hræðilegt hræðilegt hræðilegt
Í Apríl brann sá staður sem mér þótti hvað mest vænt um , tónlistarlega séð, í Reykjavík , þ.e Café Rósenberg og sá ég mikið eftir þeim stað enda hafði ég fengið minn fyrsta séns á spilamennsku í Reykjavík á þeim frábæra og fallega stað.
Í nótt brann svo Kaffi Krókur, sá staður sem ég hef spilað hvað mest á í gegnum tíðina. Frábær staður í alla staði og alltaf frábær stemning þarna inni. Ég mun gráta þennan stað mjög mikið , en vona þó að hann verði reistur aftur í sömu mynd , enda fallegt og sögulegt hús.
Ég vona að Jón Daníel og félagar fái hjálp við að byggja staðinn upp á nýtt svo hægt sé að halda áfram þessari frábæru starfsemi sem þarna var.
Stórbruni á Sauðárkróki í nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.