Tónleika-blogg-flóð

Ég er nú ekki virkur bloggari á þessu moggabloggi, aðallega vegna þess að ég tel sjálfan mig vera grautlélegan penna... en engu að síður finnst mér ég knúinn til þess að commenta aðeins á tónleikana... þar sem skoðanir fólks eru mismunandi ... en þetta er í raun og veru einfalt :

* Garðar Thor var fagmannlegur, en drap niður stemninguna ..( ef einhver var... því áfengi var ekki leyft þarna. .. og NEI ... mér finnst ekki gaman að skemmta mér án áfengis.. ég er bytta.. ég veit)

* Ég trúi því ekki að Nylon séu að gera góða hluti í Bretlandi því ég hef heyrt 13 ára frænku mína og vinkonur hennar syngja og dansa betur en þessar andlausu stelpur ... held að það sé best fyrir þessa einu sem getur sungið eitthvað af viti (og söng um 80% af öllum söng þeirra) að skella sér í sóló-framann og gefa út eins og eina sæta jólaplötu eða svo... segja bara bless við Nylon eins og þessi ljóshærða sæta sem gifti sig.

* Todmobile eru náttúrulega reynda í bransanum og gerðu góða hluti, þó svo að Eyþór og Þorvaldur hefðu mátt sleppa því að syngja með þegar Andrea var að syngja, því raddirnar þeirra voru ekki að samsvara sér... engan veginn...  ég var samt mjög feginn að þau tóku Brúðkaupslagið ... það er mitt favorit eð þeim.

* Luxor veittu mér einn furðulegasta kjánahroll sem ég hef fundið... þetta concept "Boyband" er svo engan veginn að virka á Íslandi og var þetta eins og eitthvað væmið sprell á karokíkvöldi á Ölveri. .. já svei mér þá.

* Mugison var bestur og ég þarf ekkert að fara neinum orðum um það... hann og Pétur Ben áttu þetta kvöld.

* Bubbi var þreyttur.... með pólítískar yfirlýsingar og 10 mínútur af "jeeee jeee je je je" ... hann hefði mátt vera með band með sér .... ég hef ekki fílað Bubba síðan að hann var í Utangarðsmönnum.

* Stuðmenn voru kjánalegir.... þetta var náttúrulega hræðilegt hjá þeim , en ég gat samt hlegið að þessum "Kraftwerk-poppi" sem þeir voru að reyna að framkvæma... þetta var skemmtilega hallærislegt og góð aðferð til að hrekja mannskapinn í burtu frá þjóðarleikvanginum ... haha.... Bó er samt alltaf sterkur og var flottur í pilsinu sínu.

 ... en það mætti alveg gera þetta oftar, ég skemmti mér konunglega með bjórinn í sófanum að hneykslast á hinu og þessu... meira svona bankar !


mbl.is Aldrei fleiri á Laugardalsvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Brynjar Páll Rögnvaldsson
Brynjar Páll Rögnvaldsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband